.
_




eCS tenglar


OS/2 News & Rumours muna kannksi gamlir OS/2 hausar eftir frá því að hún var vistuð á OS/2 Supersite um miðjan tíunda áratugarinn, en sú þjónusta hefur verið í gangi síðan á níunda áratugnum í einu formi eða öðru. OS/2 World er einna besta fréttasíðan sem að er uppi í dag hinnsvegar en á það til að vera niðri þá og þegar, Austur-Evrópskar síður eru oft með helling af góðu efni, eins og til dæmis OS/2.ru er það er Rússnesk síða með nokkuð af áhugaverðum upplýsingum á, eitthvað af því er einnig fáanlegt á ensku. Mest lesna veftímaritið (en ekki endilega það besta) er OS/2 Ezine en einnig má líta á V.O.I.C.E.. Ein nýleg síða sem stundum nær efni sem að ekki fynnst á öðrum síðum er Ecomstation.org, hönnunin á síðunni er hinns vegar eilítið brengluð, allaveganna í 1280 x 1024.


Spjallhópar.

Ecomstation Forums er fyrir umræður á Ensku um eCS stýrikerfið eingöngu, umræður um aðrar OS/2 útfærslur eru ekki velkomnar. Það eru líka slatti af fréttahópum vistaðir á sama stað. Það er vísir að Íslenskum umræðuhóp um OS/2 á Marknet en hann er svo nýlega settur upp að það er ekki mikið komið þar af viti. Gömlu OS/2 fréttahóparnir eru ennþá á sínum stað, ef að netaðgangssöluaðilinn þinn er ekki með þá sem hluta af aínum fréttahópum þá má nálgast þá hjá Google, en eins og með marga aðra fréttahópa þá er best að sía megnið af umræðunum í burtu. OS/2 World er einnig með nokkuð af spjallhópum hjá sér.

Af áhugaverðari pósthópum má benda á OS/2 User en þar eru aðallega notendur nýrri IBM útfærslna af OS/2 en þó eitthvað af eCS notendum, fyrir þá sem að eru að böðlast við að nota útfærslur 2,1 og Warp 3 (en það er alveg ótrúlega stór hópur) þá er betra að kíkja á OS/2 Connect, sú grúppa er að vísu ætluð öllum OS/2 notendum en af einhverjum ástæðum hættir þessum hóp til að vera ..... jammm ... hvernig skal orða þetta ..... "eilítið gráir í vangann" er kannski besta lýsingin. OS/2 Hardware er eins og nafnið bendir til ætluð til umræðna um vélbúnað er keyrir OS/2 og tengd stýrikerfi, og talandi um vélbúnað : OS/2 PCI Soundcard listinn var upprunalega ætlaður til umræðna um notkun PCI hljóðkorta en er í dag lítið notaður grátmúr fyrir þá sem að eiga hljóðkort er eigi hafa reklastuðning. OS2WP er til að ræða um ritvinnsluforrit önnur en Lotus WordPro, athugið að notun á þessum lista getur verið engin einn mánuðinn, en svo dúkka upp 30 skilaboð einn daginn upp úr þurru svo að best er að taka hann sem "digest", fyrir þá sem að hinnsvegar nota WordPro og önnur forrit úr Lotus SmartSuite pakkanum þá er Smartsuite-os2 hinnsvegar rétti staðurinn. Fyrir umræður um Scitech SNAP Graphics skjákortsreklana kíkið á þennan fréttahóp og fyrir notendur Opera/2 má benda á Opera/2 fréttahópinn, en hafa verður í huga að eftir að Mozilla 1.4 kom út þá hefur Opera litið verið seld, talandi um Moz, hér er fréttahópur sem að fjallar um OS/2 og eCS úfærslurnar eingöngu, athugið að Mozilla er einnig til sem IBM Web Browser.


Forrit osf.

Gamli góði Hobbes (eða Hobbes FTP)er ennþá á sínum stað og það er LEO líka en hvorugur þeirra er eins vinsælir og þeir voru "í den", það eru samt hrúgur af góðum forritum á báðum stöðum. Besti staðurinn til að finna hugbúnað er líklega OS/2 Site an það er nýleg Áströsk síða . Upplýsingar um Java útfærslur og forrit má finna á OS/2 Java Corner























© 1997 - 2004 Ólafur Gunnlaugsson