|
Það fylgir AVI spilari með öllum útfærslum af OS/2 nýrri en 1992 hinnsvegar er lítið af stuðningi við önnur myndsnið fyrir utan MPEG1, þannig
að best er líklega að ná í WarpVision en það forrit styður afspilun af DVD, DivX-3, DivX-4, DivX-5, XViD, MPEG-1, MPEG-2, MPEG-4, AVI,
ASF og Sørenson v1 (QuickTime) myndskrám ásamt afspilun af MP3, AC3 (AAC) og WMA hljóðskrám. Það eru 2 útgáfur af forritinu, ein með gluggaviðmóti
sem að er ætluð fyrir þá sem hafa eCS eða Warp4 FP 15 eða nýrri og skjákortsrekla byggða á GRADD (helst SciTech), fyrir þá sem eru að nota
eldri útfæslur af skjákortsreklum þá er mælt með að þú notir hinsvegar textaviðmótsútgáfuna en hún er eilítið eldri en gluggaútgáfan en er
ekki eins frek á vél og hugbúnað. Athugið að ef þú vilt spila DVD þá þarftu einnig hugbúnað til að opna DVD diskinn, meiri upplýsingar má fá
á heimasíðu Warpvision
Annar möguleiki er Xine sem að er fáanlegt hér, það er ekki eins öflugt og
Warpvision en það er algerlega ókeypis og myngæðin í sumum forsniðum eru mjög góð.
Z er nokkuð öflugur MP3 spilari sem er með textaviðmóti, fyrir utan að spila MP2/3 osf. þá styður hann Ogg Vorbis og ýmsar útfærslur af
TCP/IP útvörpun eins og til dæmis Shoutcast, en einna nettast er að Z getur hreinlega leitað að útvarpaðri gagnasendingu í TCP/IP staumi, einkar
hentugt ef að þú vilt setja upp innanhúss net með tónlistarmiðlara, meiri upplýsingar hérna.
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um Shoutcast þá er eilítið af upplýsingum hérna.
Ef þú kýst frekar gluggaviðmót þá geturðu kíkt á PM123 eða einfaldlega hent inn
CW Multimedia Classes
en þá geta allir MM spilarar unnið með MP3, FLAC og OGG, það er einnig til önnur útfærsla kölluð MMAudioPak
en sú útfærsla notar EMX og er því kröfuharðari á vélbúnað (ekki vandamál nema ef þú sért með 486 eða svo). Fyrir MP3Plus, einnig þekkt sem
MPC eða MusePaCk þá er spilari fáalegur hér ásamt Ogg Vorbis
, ég mæli þó með að Ogg sé einungis notað sem afspilunarvél stjórnað af Z eða PM123 þar sem að notendaviðmótið er heldur klént, Plogg er einnig
fáanlent en ég hef ekki hlekk á það prufaðu hobbes eða OS/2 Site.
Fyrir útvörp þá ætturðu að líta á Cool FM en það styður FM og Sjónvarpssmóttakara
fyrir ISA, PCI og USB, en athugaðu að þú getur ekki notað útvarp og sjónvarp í einu ef að þú ert með sjónvarpsmótakara, það er bara eitt
viðtæki á kortumum.
|