|
Ég hef unnið nokkuð mikið við forritun á
OS/2, einkum hef ég notast ég við Modula 2 og Oberon
forritunarmálin, bæði þýðara frá Mill Hill & Canterbury (Modula 2)
(einnig fáanlegir sem Java þýðarar og styðja
þá M2, Pascal og Oberon) og frá XDS (Modula 2 og Oberon 2), en einnig nota
ég Visual Prolog frá Danska
fyrirtækinu Prolog Development Centre, en það er algert
galdratæki sem að þýðir Prolog í
kóða sem að er jafn hraðvirkur og C++, Windows notendur
ættu einning að kíkja á það forrit og
kannski best af öllu, þú getur unnið forritin á
OS/2 og skilað þeim frá þér í Windows
útgáfu án breytinga (VP styður einnig DOS og
Linux en þá eingöngu í textaumhverfi).
Helstu C þýðarar fyrir OS/2 og eCS eru meðal annars
Visual Age C++ frá IBM, þrátt fyrir að þetta
væri minn uppáhalds C þýðari (uppáhald og
C ... hmmmm ekki gaman að sjá þetta í sömu
línu) bæði fyrir OS/2 og Windows og útgáfa 4
væri ekkert minna en byltingarkennt C++ þróunarumhverfi
þá hætti IBM að styðja þennan
þýðara fyrir x86 örgjafa árið 2001 en hann er
ennþá þróaður fyrir PowerPC örgjafa (AIX,
AS/400 og fleiri kerfi frá IBM og að einhverju leiti fyrir MacOSX),
hinnsvegar er hægt að fá GNU C/C++ (Rusl, jafnvel
þó að 3,2 sé mikið betri en fyrri
útfærslur) og gömlu Watcom þýðarana
í eilítið endurbættri útgáfu sem að
er kölluð Open-watcom og er
nú ókeypis, til að getað notað þessa
útgáfu þarftu að hafa "OS/2 Toolkit" en sá
forritapakki fylgir með eCS og OS/2 "Convinience Pack" en ekki með
OS/2 W4 vel að merkja, það er einnig nokkrir ágætir
spjallhópar fyrir notendur Openwatcom þar á meðal
OpenWatcom Contributors sem að er ætlaður fyrir þá sem aru
að vinna að því að uppfæra Watcom pakkan, en
það er fullt af gagnlegum upplýsingum fyrir notendur Watcom C
of FORTRAN að finna þar einnig OpenWatcom C & CPP Users er hinnsvega spallhópur ætlaður þeim sem að
vinna/forrita með C og C++ pakkanum og OpenWatcom FORTRAN Users er hinnsvegar ætlaður notendum Watcom FORTRAN. Fyrir
þá sem að hafa áhuga á reklaforritun má
benda á OS2DDPROG
listann hjá Yahoo.
Það má oft heyra að vöntun sé á forritunar málum og tólum fyrir OS/2, en það er orðum aukið, það má jafnvel finna Algol68 þýðara fyrir OS/2 (þann eina í heiminum sem að styður allan pakkan), en hinnsvegar er frekar vöntun á sýniforritum, kennsluefni og öðru slíku. Þeir sem að eru að byrjendur í forritun ættu að kíkja á Rexx forritunarmálið, það fylgja 2 útgáfur af því með stýrikerfinu, gamla góða Rexx (eða Classic Rexx) sem að er að mestu leiti sama málið og er notað á VM tunnunum frá IBM, en einnig fylgir með stórsniðug hlutbundin útgáfa sem að heitir Object Rexx. Helstu kostir Rexx, fyrir utan að það er ókeypis, er að það er einfalt og líkist skipanaskrám að uppsetningu en jafnframt mjög öflugt, athugið einnig að IBM býður uppá ókeypis útgafu af ORexx fyrir Linux og fyrir notendur OS/2 V3 og Server 4 (það fylgdi bara classic Rexx með þeim útgáfum) og það má kaupa útfærslur fyrir Windows bæði frá IBM og frá öðrum aðilum, Rexx fylgir einnig með öllum öðrum stýrikerfum frá IBM þannig að það má flytja forrit á milli flestallra kerfa með litlum eða engum breytingum. Meiri upplýsingar um Rexx má fá hjá Rexx LA og fyrir þá sem að hafa áhuga á gluggatengdri forritun með REXX þá má benda á GUI Object Rexx Póstlistan, (vegna þess að REXX er eiginlega skipanaskráarkerfi, þá er yfirleitt ekki gert ráð fyrir forritum með gluggaviðmóti), þokkalegt kennsluefni má finna hér og stutt kynning á kerfinu hér. Önnur skipanaskráarkerfi eru einnig fáanleg eins og Ruby, Python og Pearl.
Einnig má benda gömlum Turbo Pascal hausum á Virtual Pascal en það er ókeypis BP7 og Delphi 2
samhæfð útgáfa af Pascal sem að er með nokkuð góðum þýðara og mjög góðu textaviðmóti sem að styður Forritun fyrir OS/2, Windows32 og að einhverju leiti DOS og Linux.
Annað nokkuð nett við VP er að það þýðir sum af vinsælustu "libs" frá BP7 fyrir DOS og Win 3.x yfir í OS/2 nothæft form.
Notendaumhverfið er BP7 vel að merkja, ekki Delphi en forritunarmálið sjálft er Delphi 2 samhæft. Það mátti hinnsvgar fá Delphi
eftirlíkingu sem að hét Speedsoft Sybil en það forrit virðist hafa verið fjarlægt af markaðnum. Bæði GNU Pascal og FreePascal eru einnig
fáanleg fyrir OS/2 og FreePascal styður OS/2 forritun sérstaklega vel an vandamálið við þann þýðara er eins og með fjölda aðra "Open Source"
þýðara er að þeir eru ekkert sérstaklega góðir.
|